Heimili

Heimili flokka í fjóra úrgangsflokka

Pappír og pappi

Plastumbúðir

Lífrænn heimilisúrgangur

Almennur heimilisúrgangur

Málmumbúðum, glerumbúðum og textíl, bæði notuðum og ónothæfum er safnað sér og skilað á grenndarsvöðvar.

Stærri hlutir og enn fleiri flokkar fara á móttökustöðina á Strönd

Almennt fyrirkomulag við sérbýli

Fjórar tunnur/ílát

  • Ein með bláu loki fyrir pappír & pappa
  • Ein með grænu loki fyrir plastumbúðir
  • Ein með svörtu loki fyrir blandaðan heimilisúrgang
  • Brúnt ílát fyrir lífrænan heimilisúrgang, ílátið geymist ofan í tunnunum


Algengasta stærðin á tunnum við sérbýli er 240 lítra blá, græn og svört tunna og 40 lítra brúnt ílát.


Hægt er að panta fleiri og/eða stærri tunnur/ílát.


Heimili geta lækkað sorphirðugjald með því að skipta út 240 lítra tunnu fyrir blandaðan heimilisúrgang í 140 lítra tunnu (einungis í boði fyrir blandaðan heimilisúrgang, ekki aðra flokka).

Fyrirkomulag við fjölbýli

Fyrirkomulag á tunnum/ílátum við fjölbýli getur verið mismunandi

660 lítra tunnur eru algengar í bland við 240 lítra tunnur.


Sama flokkun gildir eins og við sérbýli

  • Pappír & pappi
  • Plastumbúðir
  • Blandaður heimilisúrgangur
  • Lífrænn heimilisúrgangur

Stærðir á tunnum

Tegund Hæð Breidd Dýpt
140 lítra 106,5 cm 48 cm 56 cm Svört tunna
240 lítra 107,9 cm 56,9 cm 73,7 cm Svört tunna og tunnur með bláu og grænu loki
660 lítra 121,8 cm 125,5 cm 77,3 cm Svört tunna

Gjöld

Sorphirðugjöld og sorpeyðingargjöld eru innheimt af viðkomandi sveitarfélagi með fasteignagjöldum ár hvert.


Sorpeyðingargjald er innheimt af öllu íbúðar- og frístundahúsnæði í Rangárvallasýslu (Ásahreppur, Rangárþing eystra og Rangárþing ytra). 


Gjaldið tekur til reksturs sorpkerfisins, svo sem reksturs grenndarstöðva, móttökustöðva og förgunar- og endurvinnsluleiða. Greiðsla á gjaldinu veitir aðgengi að sorpkerfinu og losun á heimilisúrgangi.


Sorphirðugjald er innheimt af íbúðarhúsnæði eftir fjölda og stærð tunna/íláta.


Sjá nánari upplýsingar í gjaldskrá.