Um okkuR
Sorpstöð Rangárvallasýslu
FRAMTÍÐIN
Horft til framtíðar
Sorpstöð Rangárvallasýslu vinnur stöðugt að áframhaldandi þróun þjónustu og innviða. Meðal annars er í vinnslu áform um sorporkustöð með orkuvinnslu. Hugmyndin er að nýta blandaðan úrgang til orkuframleiðslu og mögulega nýta orkuna í tengslum við hitaveitu á svæðinu. Einnig er unnið að lausnum vegna dýrahræja og dýrleifa á Strönd.
SAGAN
Saga Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. er byggðasamlag sem nær yfir alla Rangárvallasýslu.
Stöðin annast alla meðhöndlun og förgun úrgangs í umboði sveitarfélaganna þriggja í sýslunni.
Rangárþing eystra, Rangárþing ytra og Ásahrepp.


SVeitarfélag
Rangárþing eystra
Rangárþing eystra varð til þann 9. júní árið 2002 þegar sex hreppar í austanverðri Rangárvallasýslu sameinuðust í eitt sveitarfélag: Hvolhreppur, Fljótshlíðarhreppur, Austur-Landeyjahreppur, Vestur-Landeyjahreppur, Austur-Eyjafjallahreppur og Vestur-Eyjafjallahreppur.
Rangárþing eystra nær frá Eystri-Rangá í vestri til Jökulsár á Sólheimasandi í austri og á svæðinu er að finna fjölmargar náttúruperlur og sögufræga staði, svo sem Seljalandsfoss, Njáluslóðir, Skógafoss og Þórsmörk. Tvær undirstöðuatvinnugreinar sveitarfélagsins eru landbúnaður og ferðaþjónusta.
Hvolsvöllur er stærsti þéttbýlis- og þjónustukjarni sveitarfélagsins.

SVeitarfélag
Rangárþing ytra
Rangárþing ytra varð til 9. júní 2002 við sameiningu þriggja sveitarfélaga í vestanverðri Rangárvallasýslu: Rangárvallahrepps, Djúpárhrepps og Holta- og Landssveitar.
Rangárþing ytra er víðfeðmt sveitarfélag sem nær frá láglendi Rangárvallasýslu langt inn á hálendi Íslands. Landbúnaður, hestamennska og ferðaþjónusta skipa þar mikilvægan sess.
Hella er stærsti þéttbýlis- og þjónustukjarni sveitarfélagsins en innan þess eru einnig þekktar náttúruperlur á borð við Heklu og Landmannalaugar.
Sveitarfélagið leggur áherslu á sjálfbærni og ábyrga umgengni við náttúruna. Í umhverfisstefnu Rangárþings ytra 2024-2030 er meðal annars lögð áhersla á að draga úr úrgangsmyndun, efla flokkun og endurvinnslu og stuðla að ábyrgri nýtingu auðlinda.




SVeitarfélag
Ásahreppur
Ásahreppur er vestast í Rangárvallasýslu og á sér langa sögu. Hreppurinn varð til þann 11. júlí árið 1892 þegar Holtamannahreppi var skipt í tvennt. Árið 1936 var Ásahreppi aftur skipt og varð neðri hluti hans að Djúpárhreppi.
Ásahreppur er dreifbýlt sveitarfélag þar sem landbúnaður hefur lengi verið mikilvæg atvinnugrein. Landslagið er fjölbreytt og einkennist af mýrlendi, ásum og holtum þar sem bæir standa víða í litlum þyrpingum. Þjórsá markar vesturmörk sveitarfélagsins og Holtamannaafréttur nær langt inn á hálendið, meðal annars að Þjórsárverum.

HAFA SAMBAND
Opnunartími og símanúmer
487 5157
Mán – fös
08:00 – 18:00
Laugardagur
10:00 – 14:00
Sunnudagur
Lokað
Gjaldskrá Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Gjaldskrá 2026
Ef ósamræmi er á milli þess texta sem hér er að neðan og pdf-skjalsins þá gildir pdf-skjalið.
1. gr. - Heimild
Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt ákvæðum 11. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum. Sorphirðugjald og sorpeyðingargjald innheimtast með álögðum fasteignagjöldum ár hvert. Gjöld skv. 2.-4. gr. taka breytingum skv. vísitölu neysluverðs til verðtryggingar í upphafi hvers árs.
2. gr. - Sorphirðugjald
Innheimta skal sorphirðugjald af öllu íbúðarhúsnæði skv. eftirfarandi álagsgrunni.
| Ílátastærð | Grátunna | Blátunna | Græntunna | Lífræn |
|---|---|---|---|---|
| 240 l ílát | 17.600 kr. | 5.900 kr. | 5.900 kr. | 5.900 kr. |
| 660 l ílát | 52.600 kr. | 17.600 kr. | 17.600 kr. | |
| 140 l ílát | 10.200 kr. | 3.400 kr. |
Sorphirðugjald fyrir grunneiningu íláta er kr. 29.400 og inniheldur 240l blátunnu, 240l grátunnu, 240l græntunnu og brúnt ílát í tunnu fyrir lífrænan úrgang. Hægt er að fá fleiri og/eða stærri ílát.
3. gr. - Sorpeyðingargjald
Innheimta skal sorpeyðingargjald
kr. 31.600
af öllu húsnæði í Rangárvallasýslu, þ.e. íbúðar-, frístunda-, og atvinnuhúsnæði. Sorpeyðingargjald tekur til reksturs sorpkerfisins, s.s. rekstur grenndarstöðva, móttökustöðvar og förgunar- og endurvinnsluleiða. Greiðsla þess veitir viðkomandi aðilum aðgengi að sorpkerfinu og afsetningu á heimilisúrgangi. Rekstraraðilar sem afsetja rekstrarúrgang á móttökustöðinni Strönd vegna atvinnureksturs skulu greiða fyrir það, sjá 4. gr. Gjaldtaka á Strönd er ekki hluti af sorpeyðingargjaldi sveitarfélagsins.
4. gr. - Gjaldtaka á móttökustað
| Úrgangstegund | kr. kg. án VSK | kr. kg. m/VSK | Gjaldskyldir |
|---|---|---|---|
| Blandaður heimilisúrgangur | 60 | 74 | Fyrirtæki/einstaklingar |
| Grófur úrgangur - pressanlegur | 72,5 | 90 | Fyrirtæki/einstaklingar |
| Grófur úrgangur til flokkunar | 85 | 105 | Fyrirtæki/einstaklingar |
| Harðplast með úrvinnslugjaldi (s.s. brúsar, fötur) | 5,5 | 7 | Fyrirtæki/einstaklingar |
| Heimilisplast | 5,5 | 7 | Fyrirtæki |
| Blandaður pappír/pappi | 18 | 22 | Fyrirtæki |
| Bylgjupappír | 5,5 | 7 | Fyrirtæki |
| Timbur hreint | 15 | 19 | Fyrirtæki/einstaklingar |
| Timbur litað | 25 | 31 | Fyrirtæki/einstaklingar |
| Garðaúrgangur, trjábolir, greinar og jarðvegur | 5 | 6 | Fyrirtæki |
| Óvirkur úrgangur (gler, flísar, postulín o.fl.) | 15 | 19 | Fyrirtæki/einstaklingar |
| Dýraleyfar | 40 | 50 | Fyrirtæki/einstaklingar |
| Lífrænn heimilisúrgangur | 27 | 33 | Fyrirtæki |
| Heyrúlluplast, áburðarpokar - hreint | 0 | ||
| Hjólbarðar | 0 | ||
| Málmar | 0 | ||
| Spilliefni, raftæki | 0 | ||
| Heimsendur gámur, flokkaður - 40.000 kr. m/VSK | Einstaklingar | ||
| Vélavinna vegna losunar undir 1 rúmmetra | 2.419 | 3 | Fyrirtæki/einstaklingar |
| Vélavinna vegna losunar yfir 1 rúmmetra | 4.838 | 6 | Fyrirtæki/einstaklingar |
Heimilt að leggja á lágmarksgjald fyrir eðlislétt sorp (t.d. einangrunarplast) kr. 1.200 m3.
Heimilt er að innheimta útlagðan förgunarkostnað sem hlýst af móttöku spilliefna.
Heimilt er að leggja 10.000 kr gjald á aðila er verða uppvísir að losun úrgangs fyrir utan grenndargáma.
Óflokkaðir ferðavagnar og heitir pottar tilheyra grófum úrgangi til flokkunar.
Óhreint landbúnaðarplast tilheyrir blönduðum heimilisúrgangi.
Ef óflokkað er í heimsendan gám skal greitt skv. þyngd innihaldsins. Heimsendir gámar eru einungis fyrir íbúa í Rangárvallasýslu.
Klippikort með 5 m3 af gjaldskyldum úrgangi er í boði fyrir þá sem greiða sorpeyðingargjald.
5.gr. - Samþykki og staðfesting
Gjaldskrá þessi var samþykkt á fundi stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. þann 10.11.2025 og staðfest af sveitarstjórnum þeirra sveitarfélaga sem reka Sorpstöð Rangárvallasýslu. Gjaldskráin gildir frá birtingu hennar í B-deild Stjórnartíðinda. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1475/2024
ALMENNT UM ÚRGANG
Heimili og fyrirtæki
Heimili
Allan annan úrgang en heimilisúrgang, s.s. timbur, málma, grófan úrgang o.fl., skal fara með á gámavöll á Strönd. Einnig er tekið á móti heimilisúrgangi á gámavelli. Húsráðanda er heimilt að afsetja á sjö daga fresti heimilisúrgang allt að 2 m³ án gjaldtöku. Gjald er að öðru leyti tekið fyrir úrgang skv. vigt og gjaldskrá.
Fyrirtæki
Fyrirtæki, á sama hátt og frístundahúsaeigendur, annast sjálf um sín sorpmál. Fyrirtæki geta valið að fara með flokkaðan úrgang á gámavöllinn á Strönd eða kaupa þjónustu hjá verktökum sem slíka þjónustu bjóða. Fyrirtæki greiða fyrir allan gjaldskyldan úrgang, skv. vigt og gjaldskrá, sem komið er með á Strönd.

