Móttökustöð á strönd
Aðalstarfsstöð Sorpstöðvar Rangárvallasýslu er móttökustöðin á Strönd. Þar taka starfsmenn á móti íbúum og fyrirtækjum á opnunartíma og veita leiðbeiningar um flokkun.
HAFA SAMBAND
Opnunartími og símanúmer
855 1757
Mánudagur
Lokað
Þriðjudagur - föstudagur
13:00 – 17:00
Laugardagur
11:00 – 15:00
Sunnudagur
Lokað
Aðgangskort
Aðgangskortið veitir íbúum aðgang að móttökustöðinni á Strönd og þarf ávallt að hafa meðferðis, hvort sem komið er með gjaldskyldan eða ógjaldskyldan úrgang.
Starfsmaður metur magn gjaldskylds úrgangs og klippir af kortinu í samræmi við afhent magn.
Kortið gildir fyrir
5 m³
Eitt klipp
0,25 m³
Til viðmiðunar er eitt klipp
240L tunna / 1 stór ruslapoki
Komið að bómu
Stöðvið við bómu og bíðið eftir að starfsmaður hleypi ykkur inn á svæðið.
Innvigtun og móttaka
Ekið inn á vigtina þar sem starfsmaður tekur á móti ykkur, skoðar úrganginn og veitir leiðbeiningar um flokkun.
Íbúar á starfssvæði Sorpstöðvar Rangárvallasýslu framvísa klippikorti.
Fyrirtæki, óháð staðsetningu, eru innvigtuð og greiða samkvæmt gjaldskrá.
Einstaklingar utan starfssvæðis Sorpstöðvar Rangárvallasýslu eru einnig innvigtuð og greiða samkvæmt gjaldskrá.
Flokkun úrgangs
Ekið áfram inn á svæðið og upp á ramp þar sem úrgangurinn er flokkaður í rétt ílát samkvæmt leiðbeiningum starfsmanns.
Mikilvægt: Forflokkið úrganginn áður en komið er á stöðina. Það flýtir fyrir afgreiðslu og auðveldar flokkun.
Brottför
Íbúar á starfssvæði geta ekið beint út af svæðinu þegar losun er lokið.
Fyrirtæki og einstaklingar utan starfssvæðis aka aftur á vigtina til útvigtunar áður en þeir yfirgefa svæði.
HEIMSÓKN Á MÓTTÖKUSTÖÐ
Hvernig fer heimsókn fram?
Til að tryggja greiða og örugga afgreiðslu biðjum við viðskiptavini að fylgja þessum einföldu skrefum.
Komið að bómu
Vigtun
Flokkun
Brottför
Stöðvið við bómu og bíðið eftir að starfsmaður hleypi ykkur inn á svæðið.
Akið inn á vigtina þar sem starfsmaður tekur á móti ykkur, skoðar úrganginn og veitir leiðbeiningar um flokkun.
Íbúar á starfssvæði Sorpstöðvar Rangárvallasýslu framvísa aðgangskorti.
Fyrirtæki, óháð staðsetningu, eru innvigtuð og greiða samkvæmt gjaldskrá.
Einstaklingar utan starfssvæðis Sorpstöðvar Rangárvallasýslu eru einnig innvigtaðir og greiða samkvæmt gjaldskrá.
Akið áfram inn á svæðið og upp á ramp þar sem úrgangurinn er flokkaður í rétt ílát samkvæmt leiðbeiningum starfsmanns.
Mikilvægt: Forflokkið úrganginn áður en komið er á stöðina. Það flýtir fyrir afgreiðslu og auðveldar flokkun.
Íbúar á starfssvæði geta ekið beint út af svæðinu þegar losun er lokið.
Fyrirtæki og einstaklingar utan starfssvæðis aka aftur á vigtina til útvigtunar áður en þeir yfirgefa svæði.
Gjaldskrá móttökustöðvar á Strönd
| Úrgangstegund | kr. kg. án VSK | kr. kg. m/VSK | Gjaldskyldir |
|---|---|---|---|
| Blandaður heimilisúrgangur | 60 | 74 | Fyrirtæki/einstaklingar |
| Grófur úrgangur - pressanlegur | 72,5 | 90 | Fyrirtæki/einstaklingar |
| Grófur úrgangur til flokkunar | 85 | 105 | Fyrirtæki/einstaklingar |
| Harðplast með úrvinnslugjaldi (s.s. brúsar, fötur) | 5,5 | 7 | Fyrirtæki/einstaklingar |
| Heimilisplast | 5,5 | 7 | Fyrirtæki |
| Blandaður pappír/pappi | 18 | 22 | Fyrirtæki |
| Bylgjupappír | 5,5 | 7 | Fyrirtæki |
| Timbur hreint | 15 | 19 | Fyrirtæki/einstaklingar |
| Timbur litað | 25 | 31 | Fyrirtæki/einstaklingar |
| Garðaúrgangur, trjábolir, greinar og jarðvegur | 5 | 6 | Fyrirtæki |
| Óvirkur úrgangur (gler, flísar, postulín o.fl.) | 15 | 19 | Fyrirtæki/einstaklingar |
| Dýraleyfar | 40 | 50 | Fyrirtæki/einstaklingar |
| Lífrænn heimilisúrgangur | 27 | 33 | Fyrirtæki |
| Heyrúlluplast, áburðarpokar - hreint | 0 | ||
| Hjólbarðar | 0 | ||
| Málmar | 0 | ||
| Spilliefni, raftæki | 0 | ||
| Heimsendur gámur, flokkaður - 40.000 kr. m/VSK | Einstaklingar | ||
| Vélavinna vegna losunar undir 1 rúmmetra | 2.419 | 3 | Fyrirtæki/einstaklingar |
| Vélavinna vegna losunar yfir 1 rúmmetra | 4.838 | 6 | Fyrirtæki/einstaklingar |
- Heimilt að leggja á lágmarksgjald fyrir eðlislétt sorp (t.d. einangrunarplast) kr. 1.200 m3
- Heimilt er að innheimta útlagðan förgunarkostnað sem hlýst af móttöku spilliefna.
- Heimilt er að leggja 10.000 kr. gjald á aðila er verða uppvísir að losun úrgangs fyrir utan grenndargáma.
- Óflokkaðir ferðavagnar og heitir pottar tilheyra grófum úrgangi til flokkunar.
- Óhreint landbúnaðarplast tilheyrir blönduðum heimilisúrgangi.
- Ef óflokkað er í heimsendan gám skal greitt skv. þyngd innihaldsins. Heimsendir gámar eru einungis fyrir íbúa í Rangárvallasýslu.
- Klippikort með 5 m3 af gjaldskyldum úrgangi er í boði fyrir þá sem greiða sorpeyðingargjald.
Skrunið til hliðar fyrir verðskrá
Fyrirtæki
Fyrirtækjum er heimilt að skila flokkuðum úrgangi á móttökustöðinni á Strönd á opnunartíma stöðvarinnar.
Allur úrgangur frá fyrirtækjum er gjaldskyldur samkvæmt gildandi gjaldskrá. Gjald er innheimt eftir þyngd eða umfangi úrgangs, eftir því sem við á, auk gjalds fyrir vélavinnu þegar hún á við.
Fyrirtæki skulu flokka úrgang áður en komið er á móttökustöðina. Rétt flokkun stuðlar að lægri kostnaði þar sem gjald er mismunandi eftir úrgangsflokkum. Tilteknir úrgangsflokkar eru gjaldfrjálsir samkvæmt gildandi gjaldskrá.
Starfsmenn móttökustöðvarinnar meta flokkun og magn úrgangs og ákvarða gjaldtöku samkvæmt gildandi gjaldskrá. Fylgja skal leiðbeiningum starfsmanna um móttöku og losun úrgangs.
Fyrirtækjum er
ekki heimilt að skila úrgangi á grenndarstöðvarnar.
ALMENNT UM ÚRGANG
Heimili og fyrirtæki
Heimili
Allan annan úrgang en heimilisúrgang, s.s. timbur, málma, grófan úrgang o.fl., skal fara með á gámavöll á Strönd. Einnig er tekið á móti heimilisúrgangi á gámavelli. Húsráðanda er heimilt að afsetja á sjö daga fresti heimilisúrgang allt að 2 m³ án gjaldtöku. Gjald er að öðru leyti tekið fyrir úrgang skv. vigt og gjaldskrá.
Fyrirtæki
Fyrirtæki, á sama hátt og frístundahúsaeigendur, annast sjálf um sín sorpmál. Fyrirtæki geta valið að fara með flokkaðan úrgang á gámavöllinn á Strönd eða kaupa þjónustu hjá verktökum sem slíka þjónustu bjóða. Fyrirtæki greiða fyrir allan gjaldskyldan úrgang, skv. vigt og gjaldskrá, sem komið er með á Strönd.

