Fatagámar

November 18, 2026

Share this article

Vissir þú að hver Íslendingur losar sig við um það bil 20 kg af textíl á ári? Nýlega varð sú breyting á að Rauði kross Íslands sér ekki lengur um fatagámana sem staðsettir eru á grenndarstöðvunum á Landvegamótum, Hellu og Hvolsvelli. Sorpstöð Rangárvallasýslu hefur tekið yfir umsjón þeirra. Í fatasöfnunargámana má setja allan textíl. Föt og klæði mega vera rifin eða slitin þar sem þau nýtast til endurvinnslu.


Rauði krossinn heldur áfram safna heilum og hreinum fatnaði til endursölu og neyðaraðstoðar innanlands. En sala á notuðum textíl er ein mikilvægasta fjáröflun félagsins til mannúðarverkefna sinna. Móttaka á fatnaðinum fer fram á höfuðborgarsvæðinu.


Vilt þú gefa Rauða krossinum fötin sem þú notar ekki lengur? - Rauði krossinn á Íslandi

Við hvetjum íbúa til að kynna sér upplýsingar hvernig minnka má úrgang á síðunni


Saman gegn sóun

Recent Posts

November 18, 2026
Sú breyting hefur orðið á þegar móttökustöðin á Strönd er heimsótt að stöðva þarf við bómu/hlið og beðið eftir að starfsmaður hleypir inn á svæðið. Þá er ekið inn á vigt þar sem starfsmaður skoðar úrganginn og veitir leiðbeiningar um flokkun og greiðslur fyrir losun úrgangs. Íbúar á starfssvæði Sorpstöðvar Rangárvallasýslu framvísa aðgangskorti og geta ekið beint út af svæðinu eftir losun. Fyrirtæki, óháð staðsetningu, eru innvigtuð og útvigtuð og greiða samkvæmt gjaldskrá. Einstaklingar utan starfssvæðis Sorpstöðvar Rangárvallasýslu eru einnig innvigtuð og útvigtuð og greiða samkvæmt gjaldskrá. Smelltu á hnappinn til að fá nánari upplýsingar um heimsókn á móttökustöðina á Strönd.
November 18, 2026
Sorpstöð Rangárvallasýslu hefur opnað nýja heimasíðu þar sem auðveldlega má nálgast upplýsingar um sorphirðu, þjónustu stöðvarinnar og fleira. Lögð er áhersla á skýra framsetningu og notendavænt viðmót. Má þar nefna nýtt sorphirðudagatal, opnunartíma, staðsetningu og fleira. Á síðunni verða birtar fréttir og tilkynningar um það sem er á döfinni hjá Sorpstöðinni, svo sem breytingar á sorphirðu, opnunartíma og annarri þjónustu. Einnig verður áfram haldið úti Facebook síðu Sorpstöðvarinnar þar sem einnig birtast nýjustu fréttir og tilkynningar. Á heimasíðunni má finna svæði með algengum spurningum og svörum, þar sem hægt er að fá svör við ýmsu sem snýr að sorphirðu og úrgangsmálum. Nýja heimasíðan er liður í áframhaldandi þróun og umbótum á þjónustu Sorpstöðvar Rangárvallasýslu. Hún á að nýtast sem sameiginlegur upplýsingavettvangur fyrir íbúa og fyrirtæki í Ásahreppi, Rangárþingi eystra og Rangárþingi ytra.  Við hvetjum alla til að kynna sér nýju síðuna og nýta þær upplýsingar sem þar er að finna!
November 18, 2026
Gagnvirkt sorphirðudagatal er hluti af nýrri heimasíðu Sorpstöðvar Rangárvallasýslu þar sem lögð er áhersla á skýrar, aðgengilegar og uppfærðar upplýsingar fyrir íbúa. Íbúar slá inn heimilisfang sitt og þá birtist sorphirðudagatal fyrir heimilið. Þar sést hvenær næsta losun er áætluð og hvaða úrgangsflokkar verða sóttir hverju sinni. Yfir vetrartímann þegar snjórinn er mættur er sérstaklega mikilvægt að fylgjast með losunardögum til að tryggja gott aðgengi að tunnum til þess að hægt sé að losa þær. Við hvetjum alla íbúa til að prófa nýja dagatalið.