Ný heimasíða Sorpstöðvar Rangárvallasýslu komin í loftið
Sorpstöð Rangárvallasýslu hefur opnað nýja heimasíðu þar sem auðveldlega má nálgast upplýsingar um sorphirðu, þjónustu stöðvarinnar og fleira. Lögð er áhersla á skýra framsetningu og notendavænt viðmót. Má þar nefna nýtt sorphirðudagatal, opnunartíma, staðsetningu og fleira.
Á síðunni verða birtar fréttir og tilkynningar um það sem er á döfinni hjá Sorpstöðinni, svo sem breytingar á sorphirðu, opnunartíma og annarri þjónustu. Einnig verður áfram haldið úti Facebook síðu Sorpstöðvarinnar þar sem einnig birtast nýjustu fréttir og tilkynningar.
Á heimasíðunni má finna svæði með algengum spurningum og svörum, þar sem hægt er að fá svör við ýmsu sem snýr að sorphirðu og úrgangsmálum. Nýja heimasíðan er liður í áframhaldandi þróun og umbótum á þjónustu Sorpstöðvar Rangárvallasýslu. Hún á að nýtast sem sameiginlegur upplýsingavettvangur fyrir íbúa og fyrirtæki í Ásahreppi, Rangárþingi eystra og Rangárþingi ytra.
Við hvetjum alla til að kynna sér nýju síðuna og nýta þær upplýsingar sem þar er að finna!
Recent Posts


